Allt er vænt sem vel er grænt ! :)
08.10.2008 23:55:30 / sunna

Djamm á Akureyri stelpur ??!

Hæ !! :)

Hvað segir fólkið ? Er að vinna og hef ekkert að gera as always :p

Margt skemmtilegt búið að gerast seinasta mánuðinn :)

Ég, Natalie, Bryndís og Íris. Fórum í bæinn út að borða á Santa Maria, fórum síðan á mamma mia sing-along. Með blandað áfengi í flöskum eins og litlu krakkarnir :p Það var ýkt stuð ;) Síðan eftir bíóið skelltum við okkur á nokkra laugarvegsrúnta og fórum svo inná Apótekið þar sem við héldum áfram að djamma og djúsa 8)

Ég og Óli gerðum okkur líka glaðan dag. Óli tók sér frí einn föstudaginn og við skelltum okkur í Reykjvík, versluðum smá og fórum síðan á Nordica SPA. Byrjuðum á því að skella okkur í heitu pottana og þar kom einn dúddi sem að nuddaði á okkur axlirnar ummm... :) síðan fórum við uppúr þurrkuðum okkur og fengum síðan 50 mínútna heilnudd ! Algjört æði. Eftir nuddið fórum við síðan bara í sturtu og dressuðum okkur upp og fórum svo út að borða á Lækjarbrekku og OHHH LORD ! Besti matsölustaður sem ég hef á ævi minni farið á !! :d eftir matinn ákváðum við síðan að skella okkur bara aftur í Keflavík og kíkja í bíó.

Ég fór síðan á fyrsta körfubolta leikinn minn þetta seasonið. Mér líst nú bara miklu betur á þetta lið en ég bjóst við verð ég að segja. Ég bara get ekki beðið eftir því að deildin fari að byrja ! :) Ég verð samt að vinna 2-2-3 á kvöldin í vetur þannig að ég missi eflaust af þó nokkrum leikjum :cry: en maður verður bara að sætta sig við það. Vonandi get ég bara skroppið aðeins frá og svona ef það er lítið að gera í vinnunni ;) Mér finnst samt núna í ljósi kreppunnar að öll körfubolta liðin eigi að losa sig við útlendingana sína. Ég held að það sé bara ekkert nema gott fyrir íslenskan körfubolta að leyfa íslensku strákunum að spila :)

Seinustu helgi tókum við familían okkur til og hreinsuðum allt háa loftið heima hjá mömmu og pabba. Það var bara helvíti skemmtilegt margt eldgamalt leit þar dagsins ljós :) Brought back memories :) Fundum allskonar fyndin föt og gömul leikföng og svona :)

Næstu helgi förum við Óli á hótel Glym á árshátíð Toyota. Þar verður eflaust gaman :) á laugardagskvöldið verður búninga þema og er heldur betur búið að vera strögl hjá mér að finna mér búning ! Ætluðum fyrst að vera Bonnie and Clyde, síðan ætlaði Óli að vera Tae kwondo gæji í búning með brynju og læti og ég ætlaði að vera boxari með grímu, vafninga, hanska og allan pakkann og síðan ætlaði ég að vera 80's gella. Held að ég sé búin að ákveða hvað ég ætla að vera ;) Ég ætla að taka með mér myndavél og ég ætla að taka myndir í þetta skiptið :P Jahh eða ég vona það allavegana :)

Seinustu helgina og vikuna í október fer ég síðan á Akureyri í skólann. Óli kemur með mér um helgina en svo verð ég ein alla vikuna !!! 8| Ég veit ekki hvort að ég eigi eftir að lifa það af ! Auminginn ég ! :( Ég á örugglega eftir að sofa með öll ljós kveikt í íbúðinni og kveikt á sjónvarpinu :P Svo þarf ég auðvitað að mana mig í að kíkja inn í alla skápa og undir rúm, athuga með ljótu kallana þar :P nei ég er nú ekki svo slæm held ég :o En stelpur langar ykkur ekkert í djammferð til Akureyrar ? þetta var nú árlegt hjá okkur ;) Ég er allavegana með auka herbergi og stofu ef þið viljið koma :d

Jæja ég er loksins búin að skila

lots of love !! :d
Sunna

» 7 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 23:49:19 / sunna

Nj hittingur ??

Hæ,hæ :)

Hvað er að frétta af fólki ? Mig langar soldið að fara að hafa Njarðvíkurstelpu hitting, einhver sammála mér þar ? Við erum flest allar búnar með framhaldskólann núna og allar farnar í sitthvora áttina... Ég væri allavegana mikið til í eitt stykki hitting ;)

Það er svosem alveg margt skemmtilegt búið að gerast síðan síðast. Anna og Danni buðu okkur Óla í mat til sín helgina sem Sandgerðisdagarnir voru. Æðislegur matur að hætti Önnu :) Ég hélt nú að kokkurinn á heimilinum myndi elda en nei,nei Anna eldaði og bakaði handa okkur alveg geggjað gott :) Síðan kíktum við öll saman á flugelda sýninguna í Sandgerði. Ég og Óli ætluðum nú að kíkja líka eitthvað niðrí bæ á fólkið en letin tók öll völd og við fórum bara heim að sofa :þ

Síðan var auðvitað ljósanætur helgin skemmtileg like always :) Ég fór m.a. á ávaxtakörfuna, hlustaði á unglinga þungarokk og rapp :þ og rölti eitthvað um bæinn. Á laugardagskvöldinu var síðan partý hjá Svövu og Natalie hörku fjör þar ;)  Niðrí bæ var samt sem áður ALLTOF mikið af fólki ! Ég og Óli fórum á H-punktinn og vorum þar í kannski klukkutíma eða svo en fórum síðan bara heim eitthvað um 5 leytið held ég :þ

Núna á laugardaginn ákváðu Toyota fólk að fara smá fjórhjóla rúnt og enda í Grindavík heima hjá Stebba þar sem var boðið upp á geðveika kjúklingasúpu og áfengi :D Ég og Óli fórum nú ekki rúntinn þar sem að Óli var að vinna og eiginlega sem betur fer bara, það var víst ógeðslegt veður :þ Sama kvöld var okkur líka boðið í innflutnings partý hjá Bergey sem við kíktum auðvitað í og við kíktum líka heim til Guðbjargar. Ég held að klukkan hafi ekki verið nema hálf 1 - 1 þegar að mér var síðan dröslað heim og upp í rúm :^) Ég veit ekki alveg afhverju ég varð svona mikið full mér fannst ég ekkert hafa drukkið mikið  :$ jæja whatever gengur betur næst :þ

Í gær fór ég svo út að borða á Duus með pólskunum mínum Mörtu og Patrycju :) Vegna þess að þær eru að fara heim :( eða já Patrycja er reyndar að fara til Færeyja og Marta fer bara heim í einn mánuð og kemur svo aftur :D

Jæja stelpur látið mig vita ef þið viljið hafa hitting ég er alveg til í að hosta hann ef að þið viljið ;)

Adios :d 

» 8 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 23:09:27 / sunna

Sumarið í hnotskurn ;)

Hæ fólk :)

Ég er að vinna upp í flugstöð núna og hef nákvæmlega EKKERT að gera ! Ég ætlaði að vera voðalega dugleg og hlusta á fyrirlestra á netinu og glósa og svona en nei gleymi ég þá ekki skólatöskunni minni niðrí Alex, algjör auli. Ég þarf semsagt að sitja hérna í tölvunni í 4-5 tíma. Ekki beint mitt uppáhald að hanga í tölvu en jæja þið fáið þá bara vonandi langt og greinagott blogg :)

Hmmm ég ætla að skrifa um það sem stóð upp úr sumrinu hjá mér :)

Einhverja góða sumarhelgi ákváðum ég, Óli, Halla Karen og Arnar að skella okkur saman í útileigu. Ég, Halla og Arnar lögðum af stað (á honum trölla mínum með fellihýsi pabba hennar Höllu) út í óvissuna.
 Við vissum ekkert hvert við vildum fara og ákváðum meira að segja bara á seinustu stundu í hvora áttina við vildum fara. Við keyrðum semsagt í vesturátt og ákváðum að áfangastaðurinn yrði bara seinni tíma vandamál. Eftir að hafa rúntað um allan Borgarfjörðinn í einhverja klukkutíma duttum við niðrá fullkomið tjaldstæði sem heitir víst Fossatún.
Seinna um kvöldið kom svo Óli til okkar á yarisnum þeirra Höllu og Arnars. Við komum frekar seint, elduðum seint, spiluðum lengi lengi og sofnuðum svo seint :P
En vöknuðum svo snemma næsta dag. Við rúntuðum um allan anskotann, grilluðum, spiluðum, drukkum, róluðum okkur og hoppuðum á trampólíni. Geggjað gaman !! :) síðan á sunnudaginn fórum við í sveitina hjá frænku hennar Höllu og fórum að vaða í gilinu sem er þar. Það var svo svaka gaman hjá okkur að ég og Halla ákváðum að fækka aðeins fötum og synda í ánni ! Það var algjört æði ! Við létum eins og við værum orðnar litlir krakkar aftur :P Síðan pökkuðum við saman fellihýsinu, keyrðum í bæinn, fórum á Ruby Tuesday og fórum svo loksins heim.
Þetta var innilega frábær ferð í alla staði og vonandi gerum við þetta aftur að ári :D

Þar næst átti að vera svaka útileiga með öllum krökkunum sem varð ekkert úr sökum veðurs :( vonandi tekst okkur öllum að fara á næsta ári.
En við Óli létum það ekki skemma fyrir okkur og fórum við í sumarbústað. Eins og fyrr sagði þá var glatað veður þessa helgi þannig að við gerðum ekkert annað en að kúra upp í sófa horfa á báðar Skins seríurnar og éta snakk og nammi :P Kósý ! :)
Síðan á mánudeginum komu Halla og Arnar í heimsókn til okkar í bústaðinn og voru bæði mánudaginn og þriðjudaginn. Ég og Halla skelltum okkur á fjórhjólarúnt á meðan kallarnir byrjuðu að grilla síðan var étið, spilað, drukkið og farið í pottinn :)
Á þriðjudeginum rúntuðum við eitthvað, keyptum í matinn, grilluðum, spiluðum og svo fóru Halla og Arnar heim.
Á miðvikudaginn komu svo mamma, pabbi, Dagný, Hafsteinn, Viktor og Kara Sif í heimsókn. Krakkarnir voru alveg að deyja af því að þeim langaði svo að koma í pottinn og voru líka bara þar mest allan daginn !! Ég og Hafsteinn fórum í fjórhjóla rúnt og Óli og Hafsteinn líka og svo var það eiginlega bara sama tuggan við grilluðum spiluðum og svo fóru Dagný og krakkarnir aftur heim en mamma og pabbi gistu fyrir utan í húsbílnum.
Á fimmtudaginn voru mamma og pabbi farin áður en við vöknuðum, fínt :P Ég og Óli ákváðum að fara í heljarinnar fjórhjólarúnt út á Laugarvatn og Þingvelli. Það var algjört æði og alveg geggjað veður. Það var samt eitt sem ég hefði alveg viljað sleppa við. Þið hafið eflaust tekið eftir því að þegar þið eruð að keyra langar vegalengdir á góðviðrisdegi þá  verður rúðan öll útklesst af flugum ! Já við fengum það á gleraugun okkar og andlit takk fyrir !! Seinna sama dag ákváðu Dagný og krakkarnir að koma aftur og í þetta skiptið kom Jón Haukur bróðir líka. Krakkarnir héngu í pottinum, við fjórhjóluðumst, grilluðum, spiluðum og drukkum bjór :P
Á föstudeginum vöknuðum við svo öll saman, tókum til og skiluðum af okkur bústaðinum.
 Frábær ferð sem ég er alveg til í að endurtaka :)

Síðan var það verslunarmannahelgin. Ég og Óli fórum með Toyota crewinu út á Hellu þar sem að Svava og Ævar Ingi eiga bústað. Þar var semsagt einn bústaður, fjögur stór hjólhýsi, tvö fellihýsi og eitt kúlutjald sem að ég og Óli komum með :P En við sváfum síðan ekkert í því, fengum að gista í bústaðinum :)
 Jáhh þessi ferð var eins og allar ferðir með Toyota alveg endalaust skemmtileg. Við komum frekar seint á föstudeginum þannig að við vorum ekkert að grilla neitt heldur fórum bara beint í bjórinn og það var blaðrað fram á nótt.
 Á laugardeginum fóru svo einhverjir í golf en ég var bara að leika mér á trampólíninu og lagði mig og svona síðan var matur í boði Toyota geðveikt gott og auðvitað áfengi. Það kvöld var síðan án efa skemmtilegasta kvöldið ! Við fórum á brennu. Reynir fór inn í hundabúrið hans Ferró, gelti og lét eins og brjálæðingur ! :P (þetta var reyndar um daginn) Við komumst svo að því að Bella er hörkusönga og söng hún fyrir okkur eins og engill :) Óli drakk BJÓR og KAFFI OG KONÍAK halló, kalló, bimbó !! 8| Við fórum svo öll út að dansa og syngja í léttri rigningu. Reynir reif sig úr að ofan og henti sér í grasið hvað eftir annað og svo hápunktur kvöldsins... Ævar Ingi frumflutti fyrir okkur rapplag !!! Það var algjör sniiiilllllllllllld !! :haha: Við sem vorum ennþá úti gjörsamlega grétum úr hlátri ! Ég verð að ná þessu lagi einhverntímann á myndband... brilljant ! :D
Ég man ekki alveg hvað við gerðum á sunnudeginum held að það hafi bara verið rúntur, sturta, grilla, drekka, hoppa á trampólíninu og blaðra :)
Þetta var frábær ferð og ætlum við að reyna að gera þetta árlegt. Crewið fór reyndar aftur seinustu helgi en við vorum á Akureyri þannig að við komumst ekki með.

En já síðan fórum við semsagt í viku út á Akureyri bara núna í seinustu viku þar sem að ég var að byrja í háskólanum. Við fengum orlofsíbúð sem kennarasambandið á og hún var bara alveg niðrí bæ á Hafnarstræti. Bara við hliðiná Hótel KEA. Fínasta íbúð nema hvað við vorum beint fyrir neðan kirkjuna og heyrðum við kirknahljóm á 15 mínúnta fresti !
Þetta var voðalega róleg og skemmtileg vika hjá okkur. Oooog við fórum út í Mývatnssveit það var algjört æði !! :haha: Ég hitti Jónas, Gunnar, Drífu, Þórhöllu og Þuru... Ég sá líka höfrunga þrisvar sinnum ! Eða þetta heita víst andarnefjur... Gaman að sjá svona bara nánast út á götu :P

Næst á dagskrá eru síðan bara Sandgerðisdagar og svo ljósanótt !! :D

Jæja bara 4 klukkutímar eftir af vinnunni !!! 

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.07.2008 17:08:00 / sunna

Summerlove ! ;)

Jæja people á maður að skella inn einu stykki bloggi ??

Ég eeeelska sumar ! Fyrir utan flugur, sérstaklega býflugur hata þær ! :klikk: anyways þá er þetta sumar búið að einkennast af grilli og bjórdrykkju allavegana enn sem komið er. :)
 
Planið er nú samt að fara í útileigu næstu helgi annaðhvort með Höllu Karen og Arnari en ef að það rætist ekkert úr því þá ætla ég að skella mér með m&p og Dagný og litlu skrímslunum sem henni fylgja :P Það yrði eflaust fjör ég hef ekki farið í ferðalag með familíunni bara síðan  god knows when !

Helgina þar á eftir ætlum við hópurinn, 15 krakkar eða svo að skella okkur í útileigu saman það verður eflaust eitthvað um ofurölvun og skandal þar :P get ekki beðið !!

Sunnudaginn eftir það ætlum við Óli svo ekkert heim heldur að fara í bústað í Hraunborgum út þá viku. Það verður bara kósý og rólegt, við höfum aldrei farið í bústað bara tvö ein 8| Það verður gott að fá smá sumarfrí :D

Um verslunarmannahelgina förum við svo kannski í útileigu með Toyota crewinu það er samt ekkert ákveðið heldur bara hugmynd.

Í enda ágúst þarf ég svo eflaust að fara á Akureyri á nýnemavikuna í háskólanum. Það er bara brjálað að gera í allt sumar, geggjað að vera í fríi allar helgar ;)

Og já svo veit ég að það á að vera eitt innflutningspartý einhverntímann í júlí vonandi kemst maður í það líka :)

Ég er samt ekkert alveg að tíma að fara í útileigur ég er komin með svo mikið djamm fever ! :P Langar bara að djamma og djamma niðrí bæ :$ bytta ! ;) mahaha ! jæja...

xoxo Sunna Björg 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 18:59:45 / sunna

Slúður, slúður !! Hver fýlar ekki slúður ??! ;)

Hæ,hæ ! :)

Já Svava ég hélt líka að ég myndi blogga oftar eftir að ég væri komin með netið en nei ég er bara svo löt við þetta :P ennnn núna er ég að vinna og hef ekkert betra að gera ;)

Allt að verða vitlaust í Njarðvíkurliðinu :s allir að hætta og eitthvað vesen... Nei,nei Jói verður ábyggilega áfram og vonandi Hössi líka ef að hann kemst ekkert út. Síðan verður Frikki vonandi eitthvað með, en hann getur eflaust ekki spilað jafn mikið og áður. Ég hef heyrt að Palli komi kannski líka til baka og svo verða Sverrir og örugglega Egill og Hjörtur með. Síðan er verið að semja við einn þjálfara, ég vona að það takist :) Hvað er samt málið með Grindarvíkur liðið ??! Geta þeir ekki látið mennina okkar í friði ? Fyrst taka þeir Palla síðan tóku þeir Igor og núna Brenton og kannski Bailey líka ! Ég er brjálæðislega fúl út í Brenton að vera að fara :frown: Við verðum að gera allt til þess að Grindavík vinni ekki titilinn, þeir hafa reynt að kaupa hann í mörg, mörg ár en bara unnið einu sinni suckers !  :P

Ég fór í afmæli hjá Köru sætu á laugardaginn hún varð þriggja ára :) Við Dagný ákváðum að það myndi bara verða grillpartý sem að heppnaðist bara helvíti vel :) Pabbi átti líka afmæli 4. maí gamli kallinn ;)
Ég og Sigga Maggý skelltum okkur bara á rúntinn á laugardagskvöldið vorum driverar fyrir mömmu hennar og pabba, þau voru eitthvað að skrallast á Bergársballið. Við fórum líka í smá partý heima hjá Elsu frænku hennar í Sandgerði og skutluðum þeim niður í bæ. Þegar að það var svo kominn tími á að kíkja inn á staðina svona um þrjú leytið þá var ég orðin svo þreytt að ég fór bara heim :P Ég var að vinna um morguninn + það að vera í krakka afmæli allan daginn ég bara gat ekki meir :P

Styttist síðan í að gamla ég eigi afmæli, það á samt ábyggilega bara eftir að gleymast vegna þess að stelpurnar eru að fara að útskrifast !! :haha: ég hlakka til :) Stelpur hvað viljið þið fá í útskrifargjöf ?? Need anything ?? Og hvað ætlið þið að gera ? Verður eitthvað teiti eða kaffi og kökur ? ;)

Næsta fimmtudag ætlum við að fara á leikritið Ástin er diskó, lífið er pönk (heitir það ekki örugglega það :P) það verður örugglega geggjað skemmtilegt :)

  1. Hmmm.... ég veit ekkert hvað ég á að skrifa ! Hvað segið þið um smá slúður ??
  2. * Draumur Höllu Karenar rættist. Hún verður ólétt á útskriftinni sinni !! :D Til Hamingju með litla kút Halla mín :*
    1.    
    2. * Myllubakkaskóli frétti af því að Svava hafði verið rekið útaf vistinni í MA sökum    drykkjuskapar og ákváðu að segja henni upp þar sem að hún var ekki nógu góð fyrirmynd fyrir krakkana... Svava þó ! :$
    3. * Bryndís hringdi í umsjónarmenn Ungfrú Suðurnes og spurði þá hvort að þeir væru ekki til í að halda keppnina þrátt fyrir lélega þáttöku, hún væri alveg til í að vera eini keppandinn. You go girl !! ;)
    4. * Eydís þurfti að gista fangageymslur lögreglunnar á Akureyri sökum ofdrykkju og á hún von á vænri sekt fyrir að hafa kastað af sér þvagi á göngugötunni ! :$
    5. * Anna lauk loksins meira prófinu. Það fyrsta sem hún gerði var að ganga til liðs við Stulla og  styðja hann í mótmælunum. Uppáhalds lagið hennar í dag er GAS, GAS  !!

      * Íris Helga vann 20 milljónir í lottó og bauð kærastanum sínum upp á siglingu í Karabíska hafinu. Til hamingju Íris !! :)

      * Óli lenti í slagsmálum við pólverja á H-punktinum ! Helv.... pólverjar !! :evil:

      * Svava byrjaði síðan með pólverjanum. Núna er hún að sækja námskeið í pólsku :s

      Jæja veit ekki meir en þetta... í bili að minnsta kosti ;)
       
      Nenni líka eiginlega ekki meir en ég á samt ennþá eftir að skila einum bíl.. ég er orðin svo svöööng langar heim !   :(

      Blesss...


 


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 21:23:43 / sunna

Villi, Villog Valli !! :p

Hæjjjjj ! :D

Ég er komin með netið ! Can u believe it people !!? :) Þannig að núna get ég hangið á netinu heima hjá mér í litlu sætu töluvunni minni sem ég keypti í síðasta mánuði :) Ég var voðalega fúl yfir tölvuvalinu hans Óla til að byrja með, kunni ekkert á þessa tölvu og hundfúl yfir því að hann skuli ekki bara hafað keypt venjulega tölvu fyrir peningana mína ! Ég er algjör tækni idiot, kann varla á venjluega tölvu og hvað þá svona mac tölvu !! En hún var nú samt svo sæt :P Það leið samt ekkert á löngu þar til að ég tók hana í sátt. Ég bað Steinþór bróðir að koma hingað yfir og skoða tölvuna og athuga hvort hann gæti ekki installað word og svona fyrir mig og þá varð hann alveg dauð öfundsjúkur, hann langar í svona tölvu ! Og eins og flestir vita þá veit hann brósi eilítið um tölvur :P  og núna er ég bara helvíti montin yfir því að eiga svona sæta tölvu !! :P Skemmtileg tölvu saga ??! :P Og já btw þá er ég líka komin með heimasíma ef einhver vill númerið mitt þá bara sendið mér sms eða eitthvað :)

Njarðvík dottnir úr keppni :( Ég held að strákana hafi bara hálfpartinn langað að fara snemma í sumarfrí, það var allavegana engin barátta í liðinu ! Nema kannski hjá Gumma hann stóð sig drulluvel í báðum leikjunum. Ég, Bryndís, Svava og Natalie skelltum okkur á Hólminn til að horfa á seinni leikinn og í fyrrihálfleik þá leið manni eins og maður væri á æfinga leik !! Það var ENGIN stemning í húsinu ! Hvorki inni á vellinum né í stúkunni og samt var allur bærinn þarna inni ! Úfff þetta var alveg glatað :( en búið og gert og ekkert hægt að svekkja sig neitt yfir því lengur :$

Fór í afmæli til Bödda, kærasta Írisar þar seinustu helgi og það var alveg geggjað gaman ! :) fór svo í afmæli til Bryndísar og Svövu seinustu helgi, geggjað fjör :D og svo er mér boðið í afmæli til Hödda næstu helgi á Primo og mér er reyndar líka boðið í afmæli til Einars boss næstu helgi, en held ég fari samt ekkert þangað :P Akkuru eiga allir afmæli í apríl ?? :|

Jæja folks ég skrifa meira seinna, ég er lazy bloggari :P

Tékkið á könnuninni minni eitthvað til í þessu ??  ;)

Over and out ! 8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 17:41:21 / sunna

Hafsteinn foli ;)

Hæ people !

Mig langar að blogga eitthvað aðeins en er samt ekki alveg að nenna því :P  Ég fór á FS leikritið um daginn mjög skemmtilegt, kom mér mikið á óvart :) fór svo í partý til bróður hennar Bryndísar á lau og kíkti svo pínu niðrí bæ... var eiginlega bara á edrú djammi vegna þess að ég fór svo í fermingu á sunnudagsmorguninn hjá Hafsteini sæta :) 



Hafsteinn sæti frændi :) Hann á eftir að vera svo mikill hönk í framtíðinni... girls watch out ! ;)



Kara Sif sætust :)



Ég vona að ég eigi eftir að eiga jafn falleg börn og systir mín :)



Stefán og Viktor bræður Hafsteins :)

Jæja síðan ætlum við Óli loksina að fara á hótelið næstu helgi og út að borða og í leikhús. Ætluðum líka í nuddið en svo er okkur boðið í fermingu hjá frænku hans Óla á sunnudaginn þannig að ég held að ég afpanti það og við förum bara seinna ;)

Anyways mig langaði bara að deila með ykkur myndum af sætu frændum mínum og frænku ;) blogga eftir næstu helgi :P

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 16:17:30 / sunna

jáhh

Hæ,hæ :)

Skemmtileg helgi liðin, róleg en skemmtileg :) Byrja samt á því að segja ykkur frá Valentínusardeginum. Við Óli erum ekkert mikið að halda upp á svoleiðis daga neitt en fyrst að hvorugt okkar þurfti að fara á æfingu skelltum við okkur í bæinn að borða og í bíó :)  Við byrjuðum á því að sækja Gísla og krúttlegu kærustuna hans... Hverjum öðrum en mér finnst fyndið að Gísli eigi kærustu ? :P Þau eru samt alveg sætust :haha: við ákváðum að fara bara á Ruby Tuesday og borðuðum þar dýrindismat og geggjað góða brownie í eftirrétt ! Ég elska brownie's !! :D Og svo fórum við í bíó á myndina P.S. I love you, hún er algjört æði :) það voru einhverjar útlenskar stelpur við hliðina á okkur með snýtiklúta og læti :P Við komum ógeðslega seint heim og ég var ótrúlega þreytt í vinnunni daginn eftir ! :(

Um helgina var síðan bara æfing á föst. kvöldið og Viktor sæti kom og horfði á mig og mömmu sína á æfingu og síðan fékk hann að koma með mér heim í sleepover. Við keyptum okkur jarðaber, vínber og súkkulaði, leigðum okkur mynd og höfðum það bara kósý :) Síðan vakti hann mig frekar snemma daginn eftir en við héldum bara áfram að hafa það kósý upp í sófa :) svo skutluðum við Óli honum heim og fórum í bæinn.
Við þurftum að skila einhverju og keyptum svo eitthvað smotterí líka ;) Við vorum bara 2 eða 3 tíma í bænum og ákváðum svo að drífa okkur heim og skella okkur í smá fjórhjóla túr ! Við hittum Ingó litla son hans Ævar þegar við ætluðum að sækja hjólið og hann spurði hvort að hann mætti ekki koma með sem var auðvitað bara hið besta mál :) Ég og Óli vorum bara á hjólinu hans Ævars (sem er tveggja manna) og Ingó var á hjólinu hans Óla... Djöfull var þetta ÓGEÐSLEGA gaman ! það er svo miklu skemmtilegra að fá að keyra heldur en að sitja bara aftaná eins og ég gerði hjá Reyni um daginn ! Við fórum út í Rock Ville (ég veit ekki hvernig á að skrifa það :^)) og þaðan á einhvern hestamannastíg og svo aðeins út í Sandgerði. Það var búið að vera svolítil rigning þannig að hestamannastígurinn var algjör leðja og fullt af alveg risastórum pollum sem að voru bara nánast eins og stöðuvötn :P Þetta var sko fullorðins ;) Eftir að barnið í okkur hafði fengið smá útrás :P þá buðum við Ingó uppá pítsu á langbest og í bíó á myndina Jumper. Ég verð nú að segja að mér fannst hún ekkert svakalega skemmtileg en strákunum fannst hún góð.
Á sunnudaginn var svo loksins sofið veeeel út og svo bara skúra, skrúbba, bóna heimilið og leikur um kvöldið þar sem að við tókum Hamar í smá kennslustund. Hjörtur og Daníel fengu að spila helling sem er bara flott :) Þeir stóðu sig líka bara alveg frábærlega vel, Hjörtur með einhver tæp 20 stig minnir mig :D

Ég er búin að vera að lesa bók núna sem ég fékk örugglega einhvern tímann í jólagjöf þegar ég var ábyggilega 13 ára eða eitthvað. Hún heitir Nóttin lifnar við eftir Þorgrím Þráinsson man ekki einhver eftir henni ?? :) Ég las hana nokkrum sinnum á sínum tíma og fannst hún alltaf jafn sorgleg sem að hefur greinilega ekkert breyst :P ég var að klára hana í gærkvöldi og ég grenjaði svo mikið að ég þurfti að fara inná bað til að snýta mér og þurrka tárin áður en ég gæti farið að sofa !! algjör lúði :P mig vantar einverja bók til að lesa !!

búin að vinna farin :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 17:26:32 / sunna

Dottnir út :(

Hæ,hæ !!

Mikil sorg... Njarðvík skeit á sig í undanúrslitum lýsingabikarsins á laugardaginn, við erum dottnir út ! :( Djöfull spilaði liðið ótrúlega illa !! Eini maðurinn sem var eitthvað að standa sig inni á vellinum var Hössi eða það fannst mér allavegana... Frikki Stef með 2 fokking stig en samt var bara bakvörður að dekka hann !!!! Hlynur þurfti ekki einu sinni að gera það af því að stóð sig svo drullu illa ! Hlynur var bara settur á Bailey í staðinn... Æjji úfff ég er bara svo reið en vil samt ekkert vera að drulla neitt alltof mikið yfir  mitt lið hérna ennnn þeir stóðu sig samt hræðilega ! Eins gott að menn taki sig saman í andlitinu fyrir næsta leik. Njarðvík - KR á fimmtudaginn...

Ég fór á samkomuna með AVANT á föstudaginn sem var ótrúlega skemmtilegt. Raggi Bjarna og Stebbi Hilmars komu og spiluðu fyrir dansi :) Ég elllllska Ragga Bjarna hann er æði ! Hann minnir mig líka eitthvað svo á ömmu mína :P Það var allskonar þorramatur í boði, ekki alveg að fýla hann :S en sem betur fer var líka gúllas og lambakjöt og brúnaðar kartöflur og svona gotterí :) Við Óli unnum í happadrættinu :haha: tvo leikhúsmiða og út að borða á Lækjabrekku fyrir 20 þús kjéll ;) Kallinn minn er svo heppinn það voru bara 5 vinningar og við unnum einn af þeim :D En eins og áður þá varð ég alveg ofuölvi og man ekki eftir helmingnum af kvöldinu :| Óli sagði mér t.a.m. að við fórum á Rex í eitthvað afmæli hjá vini hans Stebba man ALLS ekkert eftir því :^) Rauðvín og hvítvín fer bara alls ekkert vel í mig og er það bara off limits hjá mér héðan af... Mér finnst rauðvín samt svo gott :(  Þegar að Þorrablótið verður svo hjá Ævari þá ætla ég annað hvort bara að vera driver eða sötra bjór í rólegheitum :) Ég fæ svo rosaleg blackout og ég fæ alltaf svo mikinn móral eftir svona blacout fyllerí :$ En kvöldið var samt frábært í alla staði, eða það sem ég man af því :D

Næstu helgi erum við svo að hugsa um að kíkja á Höllu Karen upp í sumarbústað... Þá förum við á nýja bílnum og ætli hjólið fái ekki að fjúka með ;) Já by the way þá erum við loksins búin að fá bílinn, eða loksins ég væri nú frekar til í að vera á Ravinum sem við erum búin að vera með í láni heldur en að þurfa að rúnta um á Hilux !! Þetta er voðlagega flottur bíll en ég er ekki alveg að fýla að vera aðal trukkalessan í bænum rúntandi á pallbíl !!! Æjji ég dæmi hann eftir að ég er búin að prófa að keyra hann ;)

Bolludagur í dag, mér finnast bollur ekkert voðalega góðar en fékk mér samt eina í vinnunni áðan :) Mig hlakkar hinsvegar mjööög mikið til að fá baunasúpu á morgum ummm það er gott !!! :D

Jæja gott í bili.... ADIOS !!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 21:21:52 / sunna

Sweeeeeep !

 

 

Ég ELSKA að vinna Keflavík !!!!!!!!!! :haha:

 

                                          Þvílíkt burst !! 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 20:58:43 / sunna

White man CAN jump !! ;)

Hæ,hæ :)

Jæja ég er loksins svona nokkurn veginn ákveðinn í því hvað ég ætla að gera í háskólamálum. Ég ætla að reyna að ná inn í sjúkraþjálfarann, það er það sem mig langar mest að læra. Ég ætla að fara að byrja að læra eitthvað undir inntöku prófið en ég ætla alls ekkert að fara að hengja mig yfir þessu neitt samt. Samanlagt er inntöku prófið litlar 12 klst, þannig að það verður eflaust ekki létt ! Ég er ekkert alltof bjartsýn á að ég nái inn og ætla þess vegna að sækja líka um í HA þar sem ég ætla þá að læra iðjuþjálfarann. Mig langar mjög mikið að læra hann líka vegna þess hve fjölbreytt starfssvið það er og það er svo mikil eftirspurn eftir iðjuþjálfum þannig að maður ætti ekki að vera í vandræðum með að finna sér vinnu sem manni líkar vel við. Þannig að það gæti verið að maður flytji í smástund inná Akureyri :S, það verður erfitt.

Ég og Óli skelltum okkur á báða stjörnuleikina seinustu helgi sem var bara helvíti skemmtilegt eins og alltaf :) Hörður tróð og tróð í byrjun leiks en gat svo ekkert í troðslu keppninni sjálfri :P En það var Ólafur sem vann troðslukeppnina sem hann átti líka fyllilega skilið, hann var LANG bestur !! Vann alla atvinnumennina og hver segir svo að white man can't jump ??!!! Eftir þá leiki fórum við á fótboltaleik Reynir S - Grindavík sáum seinni hálfleikinn þar og fórum svo heim og horfðum á handboltaleikinn ! Þetta var bara nálægt því að vera overdoze af íþróttum þennan daginn :P

Við skelltum okkur líka út í Grindavík seinustu helgi að kíkja á snjóinn og VÁ ! Þetta hef ég aldrei á ævinni minni séð áður !! Það var alveg meiri snjór hérna þegar maður var krakki en aldrei svona !!! Við kíktum á ömmu gömlu og afa í leiðinni, pallurinn hjá þeim fylltist af snjó svo að það sá ekki út !

Akkurat núna er ég að drepast úr harðsperum ! Fór á box æfingu í gær og er nánast farlama í dag ! Ég á bágt með að setjast á klósettið !!! :P Það verður dinner og djamm hjá Svövu um helgina en ef að þessar harðsperur mínar skána ekkert þá á það bara eftir að enda sem dinner hjá mér :P Vona ekki samt, langar að djamma er ekkert búin að djamma síðan 15. des fyrir utan SP Samkomuna um daginn en það telst nú ekkert sem djamm ;)

Talandi um það þá förum við á aðra samkomu næstu helgi en núna verður það AVANT sem að bíður (það er lánafyrirtæki fyrir þá sem ekki vita;)) og svo verður líka þorrablót bara núna á næstunni hjá Toyota... Nóg að gera ! :D

Mig hlakkar líka ótrúlega til þegar að hljóðneminn verður, þá ætlar enginn annar en hún Halla mín að taka þátt :haha:

Keflavík - Njarðvík á sunnudaginn !!! 8| við VERÐUM að vinna !! ÞAð eru engir smá leikir á næstunni Kef- Nj, Nj- KR og svo bikarinn Nj- Snæfell !! Eins gott að strákarnir séu í góðu formi :)

Jamm og já er þetta ekki bara orðið ágætt ? ...

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 22:15:36 / sunna

Svaraðu spruningunni minni !!? :)

 Hæ,hæ peeps :D

Allt gott að frétta af mér er bara að vinna, trimma, sofa ! :P Er að hugsa um að fara að æfa box einhver game ?? Sigga Maggý og Bryndís ætla að prófa með mér :) Það verður vonandi gaman mig langar svo að æfa eitthvað, helst körfu en box dugar ;)

Ég fór á samkomu um daginn á Nordica (sem að SP fjármögnun bauð á;) ógeðslega flott og fínt neeeema... við héldum að það yrði matur og sæti og sonna en nei ! það var bara staðið og fullt af einhverjum fancy smáréttum. Ég var alveg galtóm í maganum,ekkert búin að fá mér neitt í mallan nema nottla eitthvað af áfengi og ég var ekki alveg til í að fylla hann af einhverju sushi og saltfisk og viðbjóði þannig að ég skellti bara meira áfengi í mallan... ekki gott :$ ég varð svakalega ölvuð en fram að því þá var geggjað stuð Stebbi og Eyvi (er það skrifað svona ?? asnalegt :P) að syngja ásamt fleirum og auðvitað tók maður nokkur dans spor með gamla fólkinu :D Ég gjörsamlega lá í gólfinu yfir því að horfa á Reyni sýna einhverja danstakta það var snillld !! :haha: Ég verð að taka einhvern tímann myndir þegar ég fer á djammið með toyota svo að þið vitið hvaða fólk ég er að tala um, Reynir en t.d. frekar feitur og rosalega kallalegur kall :P ýkt fyndið að sjá hann taka sporin :) Allt sem ég man var geggjað skemmtilegt :D Svo var Óli nottla driver og við fórum á nýja 200 cruiserinum gjeeeggjað :D

En já ég er ekkert í alltof miklu ritstuði neitt núna ég á eftir að fara að skrifa bara eins og 15 ára smágelgja :P

En ein spurning á ég að lita hárið ljósbrúnt ?? Eða bara hafa blond ? Tek það fram að í svona 96% tilvika þá er ég óánægð með klippinguna mína fyrst eftir að hafa verið klippt og lituð :P

Njarðvík... æjjhhh nenni ekki einu sinni að ræða það ! Eins og staðan er akkurat núna þá erum við í 5. sæti !! og það hlýtur að segja allt sem segja þarf. 7 unnir leikir og SEX tapaðir takk fyrir !

Jæja Óli er búin að vinna... farin :D 


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 15:58:47 / sunna

Framkvæmdarstjóri skemmtigarða jáhh...

Hæ,hæ ! Kominn tími á nýja færslu ?? Jáhh ég held það :) er að vinna, hanga uppá flugvelli og bíða eftir að fólk komi og sæki bílana sína þannig að það er tilvalið að nýta tímann í svosem eitt stykki blogg ;)

Það er alveg asskoti margt búið að gerast frá því að ég bloggaði seinast en segi kannski bara frá því helsta í svona smáatriðum :)

  • Fór í áttræðis afmæli hjá ömmu gömlu og sá Ársæl frænda í fyrsta skipti frá því að hann fermdist ! Fyndið... hann var alltaf pínulítill og chubby með alveg englahvítt hár. Núna er hann alveg eins og eldri bræður sínir, langur, mjór, með músalitað hár og fáránleg ljótan skegg hýjung :P
  • Fór út að borða og á Villtu finna milljón (gáfum ömmu það í ammælisgjöf, ásamt fleiru). Við fórum allar stelpurnar, ég, mamma, Dagný systir, amma og Sissa frænka :) hún kom heim frá Ameríkunni til að komast í afmælið hennar ömmu.
  • Fór ábyggilega á einhver djömm, m.a. Palla djamm með Höllu Karen og Svövu eða já eiginlega bara Höllu. Svava var orðin svo drukkin að ég sendi hana heim eftir Land og Syni ballið, sem by the way var ekki skemmtilegt :P En það var geggjað gaman á Palla :D
  • Búin að versla næstum allar jólagjafir :)

Og svo seinustu helgi þá fór ég á Toyota jólahlaðborðið sem var haldið á Geysi :) Við gistum nánast öll á Hótel Gullfossi en einhverjir þurftu þó að gista á Hótel Geysi vegna þess að það voru ekki næg herbergi fyrir alla. Við fengum lánaðan Cruiserinn hans Stebba (hann á bara þrjá !!) svo að Óli gæti tekið fjórhjólið sitt með sér, við eigum nefninlega bara króklausan bíl.

Þegar við komum á hótelið var strax skipt yfir í hlýrri föt og farið út að hjóla ég var eina stelpan sem nennti með, hinar voru bara inni í hlýjunni að slúðra ;) Jonni bauð mér að sitja aftaná hjá sér (óli á bara eins manns hjól) en ég endaði aftan á hjá Reyni, það er nefninlega svona sæti fyrir aftan hann :) Þetta var nú ekkert jafn mikið thrill og ég hélt að þetta yrði, held að það sé mikið skemmtilegra að sitja bara sjálfur við stýrið en ég fór bara stuttan túr hvort eð er. Það sprakk eitthvað kerti á hjólinu han Óla þannig að hann hætti og ég ákvað að vera eftir með honum :)

Við rúntuðum út á Geysi og keyptum okkur fullt af nammi, síðan kúrðum við bara og horfðum á sjónvarpið þangað til að tími var kominn á að gera sig  til. Þegar við vorum búin að pússa okkur upp kíktum við fram og byrjuðum að sötra. Eitthvað seinna kom svo svona lítil rúta til að keyra okkur yfir á Geysi (það voru 8km á milli) og þurfti að fara tvær ferðir, ég fór með seinni ferð.

Þetta var alveg brjálæðislega flott hlaðborð og borðuðu allir sig pakksadda ! Eftir matinn hékk ég með stelpunum og við keyptum okkur kokteila og eitthvað svona skemmtilegt og svo var komið að því að fara á ballið. Ég byrjaði á því að skella mér á barinn með Ævari Inga og var eitthvað að spjalla við hann þegar ég allt í einu finn fyrir því að einhver er að djöflast í hárinu á mér fyrir aftan mig, ég lít við og athuga hver djöfullinn væri í gangi þá var Gústi að drepa eld í hárinu á mér !!! Já þið lásuð rétt það kviknaði í fkn hárinu á mér !!! Hann hefur eitthvað verið að fylgjast með mér eða eitthvað allavegana náði hann að drepa í því strax og enginn skaði hlaut af... Ég finn ekki einu sinni staðinn þar sem þetta gerðist, þannig að það sést ekki neitt ;) þannig endaði kvöldið hjá mér, ég fékk algjört sjokk og fór bara upp á hótel. En ég vill samt taka það fram að ég var EKKI mikið full ég rétt fann á mér :P þetta er samt svo innilega eitthvað sem að kemur BARA fyrir mig ! Hvaða bjána dettur samt í hug að setja kertaskeytingu á bar ??! :P

En fyrir utan smá íkveikju þá var þetta alveg frábær ferð eins og alltaf þegar við gerum eitthvað með Toyota :D. Næst verður það held ég út að borða með SP fjármögnun og svo styttist ábyggilega í "innflutnings " partý hjá Ævari (hann var að rífa allt útúr húsinu sínu og setja allt nýtt inn)

Næstu helgi verður hins vegar jólahlaðborð hjá Alex sem verður í Stapanum. Ég hef farið þangað seinustu tvö jól með Toyota og alveg fundist frábært en hef samt heyrt að núna í ár sé þetta búið að vera voðalega slappt eftir eigenda skiptin, en ég dæmi það bara sjálf næstu helgi ;) Það á að fara í bæinn í keilu og eitthvað fyrst yfir daginn en ég ætla að segja pass við því og mæta bara á hlaðborðið :)

Svo á hún Halla mín afmæli á á morgun er loksins að verða 19 ára !! Til hamingju með það honíbon !!! :haha:

Jáhh hvað get ég sagt meira... Á bara eftir að skila tveimur lyklum, styttist í að ég verði búin í vinnunni.

Já ég ætla að segja ykkur frá skemmtilegu prófi sem ég fór í um daginn. Ég fór semsagt í svona áhugasviðs próf í Háskóla Íslands sem kostaði litlar 8000 krónur. Ég fór semsagt í prófið einn föstudag og tók það klukkutíma að svara og svo á föstudeginum á eftir fór ég og sótti niðurstöðurnar. Ég nenni ekkert að fara neitt nákvæmlega út í þetta en út komu 7 störf sem áttu vel við mig (þetta er samt ekkert heilagt sem ég þarf að fara eftir).

  1. Öndunarþjálfari
  2. Talmeinafræðingur
  3. Röntgentæknir
  4. Sjúkraþjálfari (er búin að vera að hugsa um að læra það mjög lengi)
  5. Sérfræðingur í heilsufars upplýsingum
  6. Framkvæmdarstjóri skemmtigarða
  7. Bráðatæknir

Mér líst bara virkilega vel á þetta allt saman nema kannski þessi tvö neðstu, er ekkert alltof heit fyrir því. En ég á eftir að lesa niðurstöðurnar allar betur, þetta voru alveg fjögur nokkra síðna hefti sem við fengum til baka ! Það var námsráðgjafi sem setti fyrir okkur prófið og túlkaði helstu niðurstöður en svo megum við fara í einkatíma til hennar einhvern tímann seinna.

En jæja búin að skila öllum bílum, ætla að drífa mig út á bílastæði og leita af einhverjum bíl svo að ég komist heim !!

Blessssss....


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 17:42:44 / sunna

Komin heim :)

Hæ,hæ kiddos ! :D

Jæja þá er Frankfurt ferðin því miður búin ! :( djöfull var samt ógeðslega gaman !! :D

Ferðin byrjaði klukkan 7:30 á föstudagsmorguninn en þá lögðum við af stað í loft upp :) margir voru strax byrjaðir í bjórnum en enginn var eins vel kenndur og hann Jonni (hann var konulaus í ferðinni þannig að það var enginn til að halda aftur af honum :P)

Eftir rúmlega þriggja tíma flug lentum við, fundum töskurnar okkar og komum okkur upp í rútu... nema ein ! Gurrý fann ekki helv.. töskuna sína og ég var orðin soldið pirruð að þurfa að bíða eftir henni þar sem að þau gátu alveg tekið taxa, verslunartíminn minn minnkaði með hverri mínútunni sem við biðum ! :P mér var sagt að þetta yrði tveggja tíma rútuferð en þegar við vorum búin að keyra í korter þá vorum við komin upp á hótel :) við tjékkuðum okkur inn, georgeus hótel :P hentum töskunum inná herbergi og hlupum út í búðir !! :) fyrsta daginn fórum ég og Óli bara í H&M fullt af flottum og ódýrum fötum þar :) síðan fórum við aftur uppá hótel pússuðum okkur upp og fórum út að borða...

Ég og Óli fórum fyrsta kvöldið út að borða með eldra fólkinu þau voru búin að panta borð fyrir okkur á einhverjum mega fínum og dýrum steikarstað ! :) Reynir pantaði 5 lítra rauðvínsflösku á borðið sem kostaði yfir 500 evrur 8| ég hef aldrei á ævinni minni smakkað eins mjúka og góða steik looovely :D eftir mikið og gott át fórum við á hótel barinn, Asian bar... Þar var drukkið sig fullan, spjallað um margt og mikið og svo fórum við nokkur niður í bæ... Meiri hlutinn vildi fara á strippbúllu og úr því varð. Mér fannst þetta ekkert voðalega skemmtilegt, vildi frekar fara á dansiball :P strákarnir voru allir svo miklir hænuhausar að þeir þorðu ekki að fara upp á svið en langaði samt... Þannig að það endaði með því að ég dró Magga með mér upp á svið, við settum pening upp í munninn á okkur og gella dansaði svakalega sexy ofan á okkur, nuddaði sér vel og lengi upp að okkur tók svo peningin og fór svo, sem betur fer ég var komin með alveg dúndrandi standpínu !:P hehe spaug, en án gríns þá finnst mér þetta strippbúllu dæmi ekkert spes:S Eftir þetta fórum ég og Óli bara heim að sofa...

Daginn eftir vaknaði ég ALLTOF snemma eða korter í 8 og gat bara engan veginn sofið lengur ! það endaði með því að ég druslaðist á fætur, klæddi mig og dró þunnan Óla á fætur. Við fórum niður og boðuðum dýrindis morgunmat :) oooogg skelltum okkur svo í búðir :) við höfðum bara hálfan föstudaginn og hálfan laugardaginn til að versla þannig að við þurftum að reyna að nýta tímann vel :) við verlsuðum nú ekkert svakalega mikið en ég er samt sátt :)

Á laugardagskvöldið var svo árshátíðarkvöldið sjálft. Við gerðum okkur til en svo þurfti Óli að fara niður á undan mér vegna þess að hann er í skemmtinefnd. Eennn ég hellti mér bara í glas, langþráðan vodka í RedBull :) Síðan skellti ég á mig hattinum (það var hattaþema þetta kvöld) og fór niður í lobby þar sem boðið var upp á rauðvín, hvítvín og aðra óáfenga drykki. Þegar allir voru svo mættir niður í lobby með hattana sína var haldið upp í veislusalinn (árshátíðin var semsagt bara haldin á hótelinu núna í ár, það var flottara í fyrra en skemmtilegra núna :)) Sagðir voru brandarar, allir stóðu upp og kynntu sig og svo var borðað, mjög gott hlaðborð :) eftir matinn var dregið í happadrættinu. (ég vill bara minna á að í fyrra dró ég miðann og vann tvo konfekt kassa frá Anthon Berg sem lýsir því mjög vel hversu heppin ég er alltaf í svona happadráttum) Óli dró miða núna og viti menn við unnum flottasta vinninginn :D hótelnótt á Nordica eða Hilton veit ekki alveg hvað þetta er núna og hjóna nudd í 50 mín !! æði :D:D Síðan voru veitt allskonar verðlaun, allir drukku meira og meira og jáhh ég man ekki mikið meira af þessu kvöldi :S

Daginn eftir vaknaði ég grautþunn !! Reif mig nú samt á fætur og fór niður í lobby þar sem við ætluðum að hittast allar konurnar og fara saman í SPA :) allir voru nú mjög hissa að ég skuli hafa verið á lífi, þannig að ég hafði semsagt verið mjög skrautleg kvöldið áður úfff... man ekki mikið eftir því. Man nú samt eftir einhverjum risastórum glærum dildó og mikið af myndatökum, vona að þessar myndir verða ekki sýndar á næstu árshátíð en held það nú samt :^) Anyways þá skelltum við okkur upp í rútu og lögðum af stað. Kallin vissi nú ekki alveg hvert hann átti að fara og var soldið lengi á leiðinni, á meðan barðist ég við að halda ælunni inni ! :S þegar svo loksins var komið á áfangastað fengum við kynnisferð um staðinn það voru allskonar svo afslappandi herbergi sem við vorum svo í yfir daginn. T.a.m. var eitt herbergið eftirlíking af strönd helv töff maður lá þar inni á sandi, í frekar miklum hita, hlustaði á sjóinn og lét gervisól skína á sig :P þarna voru þrennskonar gufur, salt sundlaug þar sem maður gat látið sig fljóta um og allskonar afslappandi hlutir :) svo var nottla líka nudd :) við fengum allar 20 eða 25 mín nudd... Ég fór í svona aroma nudd sem er alnudd um allan líkamann... ohh lord það var svooo gott :) ég fékk einhverjar svaka fínan g-streng til að fara í og svo lá maður bara þarna allsnakin og lét dekra við sig geeeegt :haha: við vorum þar allan daginn eða frá 12-18:30 fyrstu tvo tímana kynntist ég nú klósettunum heldur mikið og hresstist svo eftir því sem leið á daginn :) á meðan við konurnar vorum í spa voru allir kallarnir á fótboltaleik sem við fréttum svo að hefði verið alveg geðveikt skemmtileg :D

Sunnudagskvöldið fórum svo ég og Óli út að borða með unga fólkinu, það var mjög gaman :) En eftir erfiða þynnku um daginn þá treysti ég mér ekki alveg í meiri áfengisdrykkju :S við Óli fórum bara niður á hótelbarinn fengum okkur saman desert, bananasplitt ummm :) og fórum svo bara snemma að sofa eða um 12-1 leytið :)

Á mánudagsmorguninn ákváðum ég og Óli svo að vakna snemma og gera smá loka innkaup... Við byrjuðum á að fara í morgunmatinn ohh hann var svo góður :) og hentumst svo niður í bæ. Það var búið að segja okkur að rútan myndi koma klukkan hálf 12 en þegar við vorum búin að vera smástund niðri í bæ var hringt í okkur og sagt okkur að koma strax upp á hótel, rútan væri komin. Við náðum samt sem betur fer að kaupa eitthvað handa Júlíönu systur hans Óla. Við brunuðum upp á hótel kláruðum að pakka og tékkuðum okkur svo út.

Þetta var frábær ferð í alla staði (fyrir utan smá ofuölvun og þynnku:P) og ég get ekki beðið eftir næsta Toyota hitting sem verður líklega jólahlaðborðið. Æðislegt fólk !!!! :haha:

Fór á körfuboltaleik á fimmt og leist miklu betur á liðið. Við erum nú ekki vanir að fara svona létt með Snæfellinga, langt því frá ! þannig að ég var t**** ánægð :haha: ég er að fýla Hörð í tætlur hann er drullugóður !! okkur var spáð 4. sæti í deildinni í ár ! Okkur hefur aldrei verið spáð svona neðarlega áður, eða það er allavegana mjög langt síðan og hlakkar mig bara til að afsanna þessa spá :) 

Ég fór á lokhóf Reynis í gær sem var bara skemmtilegt fyrir utan það að ég held að ég sé búin með drykkjukvótann í bili :( ég gat ekkert drukkið, var ekkert full og fór bara snemma heim. Ég er komin í drykkjupásu núna, eða ætla að reyna það :P tvö djömm fyrir áramót. Jólahlaðborðið hjá Toyota og jólahlaðborðið hjá Alex hvernig lýst ykkur á það ?

vá ég nenni ekki meir núna.

                                                        ... Heyrumst ! :D


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 17:35:34 / sunna

Frankfurt here I come :)

 

 

           Vodka í RedBull ummm... 8) á morgun :D

                                                          Later !!! :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Könnun
Ætli Valli sé ennþá skotinn í Eydísi ?? Hmmm...